breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég velti því fyrir mér hvers vegna barnamálin, til að mynda, eru færð úr félagsmálaráðuneytinu í mennta- og barnamálaráðuneyti. Verkefni barnamála fengu góða framgöngu í félagsmálaráðuneytinu á síðastliðnu kjörtímabili en þar sem þarfagreining var ekki gerð þá vitum við í raun ekki hvers vegna það gæti verið betra að flytja þau til. Staðreyndin er þó sú að aðkallandi málefni eru líklegri til að vera í forgrunni, og það verður þá væntanlega Barna- og fjölskyldustofa, en menntamálin gætu fallið í skuggann. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann deili þessum áhyggjum með mér.