152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:41]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Svona aðeins út í þetta allt saman þá langar mig að nefna að það er partur af ákveðinni pólitískri endursköpun og líka ímyndarsköpun að allt í einu séum við komin með einhvern sérstakan barnamálaráðherra. Það hefur stundum verið talað þannig síðustu misserin á Íslandi, ég ætla bara að leyfa mér að segja það, eins og það hafi aldrei neitt verið gert fyrir börn á Íslandi fyrr en bara núna á allra síðustu mánuðum. Það er auðvitað ekki svo. Já, ég deili áhyggjum hv. þingmanns. Ég segi það með öll ráðuneyti og alla skipanina, að ég hefði viljað sjá aðeins meiri vinnu lagða í að rökstyðja þetta og útskýra þetta fyrir okkur þannig að sómi hefði verið að. Það er bara nákvæmlega kjarninn í mínum málflutningi hér í kvöld.