breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Heilbrigðisráðuneyti. Hvers vegna er t.d. ekki búið til sérstakt geðheilbrigðisráðuneyti? Það er ljóst þegar horft er til alvarleika þess vanda sem við stöndum frammi fyrir í geðheilbrigðismálum að heilbrigðisráðuneytið hefur ekki getað sinnt geðheilbrigðisþjónustu eins og þörf er á. Við sjáum það á mælingum á líðan barna og við sjáum það einnig á sjálfsvígstíðni liðinna ára. Því spyr ég: Hvers vegna heldur hv. þingmaður að ekki sé verið að breyta ráðuneytum eins og heilbrigðisráðuneytinu? Gæti það mögulega verið vegna skorts á þarfagreiningu?