breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Eitt sem vekur athygli mína í þessu máli er að stofnað verður sérstakt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Þar er verið að sameina ýmsa málaflokka til að liðka fyrir sjálfbærri þróun og jafnvægi milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Þar koma saman ýmsir málaflokkar sem vissulega hafa með baráttuna gegn loftslagsvánni, aðgerðir gegn loftslagsvánni, að gera. Samt sjáum við að þau verkefni sem varða stærsta losunarþátt Íslands, sem er illa farið land — þau verkefni, landgræðslan, skógræktin og annað, eru færð undir ráðuneyti sem heitir matvælaráðuneytið. Mér þætti fróðlegt að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þetta, hvort hann deili með mér undrun yfir þessu öllu saman.