breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég er ekki í neinum vafa um að stjórnarmyndunarviðræðurnar, þ.e. hvernig gekk að skipta stólum á milli flokka, hafi meira að segja um það hvernig Stjórnarráðið lítur út frekar en einhverjar hugsjónir um betri heim og það allt saman. Þetta var einfaldlega bara ráðherrakapall sem þurfti að ganga frá. Það held ég að sé stærsta ástæðan fyrir þessu öllu. Þar blasir auðvitað við þegar kemur að orku- og umhverfismálunum að taka þurfti fyrrverandi umhverfisráðherra úr því embætti sem hann gegndi til að hann væri ekki að flækjast fyrir tilteknum málum að mati samstarfsflokkanna. En hver skýringin er á því að hitt hafi síðan verið skilið eftir á hinum staðnum skal ég ekkert fullyrða um. En auðvitað er margt í þessu, finnst mér, svolítið tilviljunarkennt þó að það sé fært í mjög fallegan búning í þessari greinargerð.