breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég er ekki sammála hv. þingmanni um að þetta sé fært í neitt sérlega fallegan búning. Mér finnst þetta afskaplega fátækleg greinargerð og í rauninni vakna fleiri spurningar en svör sem maður fær við að lesa þetta. Auðvitað veltir maður því fyrir sér hvort þessar breytingar þegar kemur að umhverfismálunum séu fyrst og fremst skilaboð um að Ísland eigi að taka á loftslagsvánni með því að virkja meira. Það eru kannski svolítið skilaboðin sem bárust frá Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í þessari kosningabaráttu og það er athyglisvert ef Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur svolítið gengist inn á það.
Annað sem maður veltir fyrir sér er þessi flutningur mannréttindamála til forsætisráðuneytisins sem er rökstuddur þannig að það endurspegli áherslur á mannréttindamál núna. Ætli hin hliðin á því sé þá sú að ekki hafi verið lögð nógu mikil áhersla á mannréttindamál (Forseti hringir.) á síðasta kjörtímabili? Hvað finnst hv. þingmanni um það? Ætli það hafi gefist illa á síðasta kjörtímabili að mannréttindamálin væru í dómsmálaráðuneytinu?