breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Við þessa 1. umr. langar mig fyrst að segja nokkur orð á almennum nótum, en megináherslan í ræðu minni verður á verkaskiptingu núverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og svokallaðs innviðaráðuneytis samkvæmt nýju skipulagi og flutning fjarskiptamála yfir í vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
Auðvitað blasir við öllum, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson orðaði svo ágætlega, að þetta er auðvitað bara ráðherrakapall sem þurfti að ganga upp nokkurn veginn, sama hver kostnaðurinn við þá aðgerð yrði. Manni sýnist á öllu, þegar betur er að gáð og hlustað er á þær ræður sem fluttar hafa verið hér í dag, að losarabragurinn sé ef eitthvað er meiri en fyrstu merki gáfu tilefni til að ætla. Ég leit á forsetaúrskurðinn frá 28. nóvember, af því að ég sé að hæstv. forsætisráðherra er kominn í salinn. (Forsrh.: Ég hlakka til að hlusta á þig.) Já, ég gaf mér það. Ég spurði hæstv. forsætisráðherra áðan með hvaða hætti ákvörðun um flutning fjarskipta úr innviðaráðuneyti yfir í nýtt vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hafi átt sér stað. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt hafa þessar ákvarðanir að meginhluta til verið teknar áður en forsetaúrskurðurinn er gefinn út þann 28. nóvember. Þar sé ég að fjarskiptin eru enn þá undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Ég er því eiginlega að óska eftir að það verði skoðað sérstaklega í vinnu hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hvort þetta sé skynsamlegt. Mér finnst einhvern veginn blasa við að þessi ákvörðun sé hvað tilviljanakenndust af þeim öllum hvað verkefnaflutning varðar.
Ég skil alveg það sem hæstv. forsætisráðherra sagði áðan um að það væri metið svo að fjarskiptainnviðirnir tengdust þróun nýsköpunar með svo afgerandi hætti að þetta væri talið skynsamlegt. En mér segir svo hugur að það eigi eftir að koma á daginn að málaflokkurinn eigi betur heima í hinu nýja innviðaráðuneyti, sem ég held að sé loksins að verða formað eins og skynsamlegt er í þeim efnum, með því að flytja húsnæðis- og mannvirkjamál annars vegar og skipulagsmál hins vegar yfir í það ráðuneyti. En einhverra hluta vegna gera menn þau mistök, að ég held, að flytja fjarskiptamálin frá ráðuneytinu. Ég held að skynsamlegt væri að skoða þetta sérstaklega. Þar sem ég starfaði í þessu ráðuneyti fyrir allnokkru síðan og tel mig hafa bærilegan skilning á innviðum þess og eftir störf í umhverfis- og samgöngunefnd á liðnu kjörtímabili held ég að nýtt innviðaráðuneyti sé mjög vel formað og sé það sem er best lukkað í þessum kapli öllum og hefði átt að gerast hvort sem er ef ekki væri fyrir þau mistök, að ég tel, að flytja fjarskiptamálin úr nýju innviðaráðuneyti. Ég vil eiginlega bara óska eftir að sérstaklega verði skoðað í nefndinni hvort ástæða sé til að fara til baka með þetta því að það er ekki mikill skaði að því. Vissulega hefur hæstv. ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, mælt fyrir svokölluðu Mílufrumvarpi, en ég held að ráðherrann muni alveg jafna sig á því þó að þessi tiltekni málaflokkur verði færður aftur á þann stað sem ég held að hann eigi betur heima á.
Í greinargerð tillögunnar er komið inn á þetta, með leyfi forseta:
„Breytt nálgun við samþættingu málaflokka í ráðuneytum hefur jafnframt það að markmiði að skapa skilyrði fyrir nýja hugsun og skapandi lausnir. Sem dæmi má hér taka þá nálgun að hafa orkumál og náttúruvernd í sama ráðuneyti, mál sem við fyrstu sýn kunna að vera eðlisólík.“
Erum við ekki búin að vera með þetta fyrirkomulag um allnokkra hríð í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu sem hefur einmitt haft þessa málaflokka sem sumir meta andstæða þó að þeir séu raunverulega býsna nátengdir? Ég held að við höfum verið komin af stað með þessa nálgun fyrir löngu síðan en hún sé ekki að verða til núna. Sömu rök eru tínd til í tengslum við málefni ferðaþjónustu og skapandi greina, að hvort styðji við annað, en það á auðvitað við í svo mörgu öðru. Ferðamálum mætti með þeim rökum koma fyrir í nýju innviðaráðuneyti. Sá sem hér stendur var aðstoðarmaður samgönguráðherra þegar skrifstofa ferðamála var stofnuð í fyrsta skipti í samgönguráðuneytinu 2004 eða 2005, minnir mig. Þá voru rökin þau, ef ég man rétt, að ferðaþjónusta væri svo undirorpin góðum samgöngum, hvort sem það væri flug, siglingar, vegir landsins eða fjarskipti og þar fram eftir götunum, að málaflokkurinn væri mest tengdur þeim málaflokkum sem væru vistaðir í samgönguráðuneyti þess tíma. Þetta er því eitthvað sem með einum eða öðrum hætti er þvert á — það verða alltaf tækifæri til að einn málaflokkur styðji við annan. Þannig að ég held að það megi ekki verða sérstök rök fyrir uppstokkun, það verður að vera eitthvað annað. Þessi rök eiga við í flestu tilliti innan margra annarra ráðuneyta.
Síðan verð ég að leyfa mér að gagnrýna að það er alveg ægilega vond setning hér, finnst mér. Eftir að búið er að lýsa samþættingu og stuðningi málaflokka hvers við annan í löngu máli, eða ekki mjög löngu, segir hér, með leyfi forseta:
„Eins og sjá má eru þessar breytingar á skipan ráðuneyta síðast en ekki síst til þess fallnar að fella ósýnilega múra stofnanamenningar og stuðla að samvinnu, samráði og samhæfingu innan Stjórnarráðsins.“
Hvað í ósköpunum þýðir þetta, hæstv. forsætisráðherra? Þetta er auðvitað einhver froðusetning sem hefur þótt falleg þarna í þessu samhengi. En hvað er verið að segja með þessu um það hvernig tekist hefur til undanfarin fjögur ár undir verkstjórn hæstv. forsætisráðherra ef þetta er staðan, að það þurfi sérstakar aðgerðir sem þessar til að fella ósýnilega múra stofnanamenningar og stuðla að samvinnu, samráði og samhæfingu innan Stjórnarráðsins? Það er áhugavert ef þetta er staðan og þá er til einhvers unnið ef þetta er raunin. En ég held að það hefði þurft að gerast í byrjun síðasta kjörtímabils ef þetta var mat hæstv. ráðherra með sitt verkstjórnarvald yfir ráðherrahópnum.
Að endingu ætla ég, af því að tíminn styttist hjá mér, bara að hnykkja á þeirri ósk minni að skoðað verði sérstaklega hvort fjarskiptamálunum sé raunverulega betur fyrir komið samkvæmt þeirri tillögu sem hér liggur fyrir, að þau færist yfir í nýtt vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti úr gamla samgönguráðuneytinu og nýju innviðaráðuneyti, og að skoðað verði með opnum hug hvort snúa eigi við þeirri ákvörðun, enda myndi það ekki stangast á við forsetaúrskurðinn frá 28. nóvember 2021. Það er greinilegt að þessi ákvörðun var tekin eftir þá dagsetningu en fyrir dreifingu þingsályktunartillögunnar. Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og þakka fyrir.