breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við þekkjum auðvitað öll þessa sílóumræðu í tengslum við Stjórnarráðið og það er býsna margt til í því. Þetta er eins og hér forðum þegar lögregluembætti vildu ekki hleypa bíl úr aðliggjandi embætti yfir einhverja tiltekna línu, þá var allt í uppnámi gagnvart ökuhraðasekt. Menn töldu sig vera sloppna ef þeir náðu yfir línuna milli umdæmis Akranes- og Borgarneslögreglunnar. Ég held að það sé rétt að þessi vandamál séu til staðar en ég sé ekkert í þessu máli sem breytir neinu í þeim efnum. Nálgunin er sú sama. Það er auðvitað hægt að skíra ráðuneyti hvað sem er. Þetta hefur nú stundum verið gagnrýnt. Utanríkisráðherra tók það upp fyrir nokkrum árum að vera utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, félagsmálaráðherra tók það upp að vera félags- og barnamálaráðherra. Ég man eftir ágætri ræðu fyrrverandi hv. þm. Páls Magnússonar þar sem hann gagnrýndi þetta og velti því fyrir sér að ef heilbrigðisráðherra hefði sérstakan áhuga á liðskiptaaðgerðum, sem hefur svo sem ekki verið raunin, hvort hann yrði þá heilbrigðis- og liðskiptaráðherra það kjörtímabilið. Þetta er bara einhver sýndarmennska og breytir engu um það hvernig Stjórnarráðið virkar og hvort menn komast út úr þessum sílóhugsunarhætti og nálgun og þar fram eftir götunum. Ég sé engar bætur hvað það varðar í þessari uppstokkun. Það að gera hlutina í réttri röð skiptir gríðarlega miklu máli ef meiningin er að ná raunverulegum árangri. En ég hef ákveðnar efasemdir um að það hafi verið fremst í röðinni heldur hafi þurft að hrókera þannig að það fjölgaði um einn ráðherra svo kapallinn gengi upp. — Ég kem að fjarskiptamálunum í seinna andsvari.