152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst hv. þingmaður ætlar að taka fjarskiptin fyrir í síðara svari þá langar mig að bæta aðeins við, af því að það sló mig einmitt þegar við í umhverfis- og samgöngunefnd fengum svokallað Mílumál til umfjöllunar að það var ráðuneyti hæstv. ráðherra Sigurðar Inga Jóhannssonar sem hafði alla sérþekkinguna og sem samdi málið. Ég held að við þurfum að skoða þetta í umhverfis- og samgöngunefnd. Mig langar að velta því upp til viðbótar hvort þingmaðurinn telji það ekki vera einhvern flöt á þessu atriði sérstaklega vegna þess að þetta er undarlegt. Er ekki ástæða fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að leita álits umhverfis- og samgöngunefndar á þessum þætti?

Síðan átti ég hér orðastað við hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra um uppskiptingu Stjórnarráðsins um daginn og þá rifjaði hann upp fyrir mér hvað var svona prímusmótorinn hjá Sjálfstæðisflokknum í því að vera á móti samþjöppun ráðuneyta á kjörtímabilinu 2009–2013. Það var að þeim þótti það ekki geta talist eðlilegt að einn og sami ráðherrann hefði á sínum höndum helming ríkisbókhaldsins eins og velferðarráðuneytið hafði. Nú voru útgjaldaþyngstu ráðuneytin fyrir þessar breytingar, hygg ég, heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið. Þau halda sér. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður geti sett sig inn í hugarheim Sjálfstæðismanna við borðið um þennan þátt vegna þess að það er verið að fjölga litlu einingunum, það er ekki verið að brjóta upp einingarnar sem Sjálfstæðismenn á tyllidögum tala um að séu of stórar.