breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Ég er nú hræddur um að sumir vina minna í þingflokki Sjálfstæðisflokksins séu orðnir óþarflega værukærir hvað útþenslu báknsins varðar. Ég held að það sé kannski meginástæða þess að þar séu allir rólegir yfir því að hér falli til kostnaður upp á nokkur hundruð milljónir vegna þessara breytinga og það hafi ekki verið tekin nein sérstök skoðun á því hvernig þetta raðast í umfangi ráðuneytanna. Það er hárrétt sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson segir að útgjaldamestu ráðuneytin halda sér. En ég vil í þessu samhengi rifja það upp í sambandi við velferðarráðuneytið risastóra, sem var búið til árið 2009 og leitt af hinum mæta manni Guðbjarti Hannessyni heitnum, að ég held að engum hafi verið greiði gerður með því risastóra ráðuneyti sem þar var formað, síst ráðherranum sjálfum á þeim tíma. Ég held að sú nálgun, hvort sem hún snýr að því hvernig íslenskt samfélag er og virkar eða hvað það er, sé ekki skynsamleg til framtíðar, þ.e. að búa til svona risaráðuneyti.
Hvað fjarskiptin varðar, þá verður hv. þingmaður aðeins að rifja upp fyrir mig spurninguna í tengslum við þau. (Gripið fram í.) Já, akkúrat. Ég bara gef mér að sjónarmiða umhverfis- og samgöngunefndar verði leitað vegna þess að nefndin fjallaði auðvitað mjög ítarlega um þessi mál á liðnu kjörtímabili í tengslum við heildarlagasetningu fjarskipta, fjarskiptakóðann sem kallaður er. Það sigldi náttúrlega í strand hér undir þinglok síðasta vor og atvikaðist með þeim hætti að býsna margir voru hissa. En ég held að það blasi við að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þurfi að leita álits umhverfis- og samgöngunefndar.