152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég verð að segja að ég fagna mjög þessari safaríku umræðu sem hefur átt sér stað hér í kvöld um þessar hugmyndir ríkisstjórnarinnar um uppskiptingu ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þetta skiptir mjög miklu máli. Mér hefur fundist umræðan í kvöld vera býsna lærdómsrík og mjög mikilvæg af því að við höfum reynt nokkrum sinnum frá því að þing kom saman að leita svara við því hvers vegna verið er að fara í þessar aðgerðir og hvað þær komi til með að kosta. Það hefur í rauninni verið mjög fátt um svör. Þannig að ég er margs fróðari, verð ég að segja, eftir að hafa hlustað á þetta.

Með breytingunni fjölgar ráðuneytum úr 10 í 12. Ég gerði athugasemdir við þetta hér áðan og hélt nú heldur betur að þeim væri að fjölga úr 11 í 12. Ég áttaði mig á því að það hafa tveir ráðherrar starfað saman undir einu heiti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, allt síðasta kjörtímabil. Það vill nefnilega svo til að á síðasta kjörtímabili varð til ráðuneyti sem hét velferðarráðuneyti af því að það þótti gott að hafa í því ráðuneyti einmitt þessa málaflokka sem þurfa að geta unnið vel saman þvert á. Að fækka sílóum. Þarna erum við að tala um heilbrigðisráðuneyti annars vegar og félagsmálaráðuneyti hins vegar, heilbrigðisþáttinn, málefni aldraðra, öryrkja og viðkvæmra hópa. Að þarna væri ákveðin samþætting og samnýting á kröftum, þekkingu og sérfræðiaðstoð. En því miður gekk það ekki nógu vel milli þeirra ráðherra þannig að ákveðið var að skipta því ráðuneyti upp í tvennt. Heilbrigðisráðherra fór í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðherra fór í félagsmálaráðuneyti með tilheyrandi kostnaði.

Þegar þetta var gert var talað um að bara uppskiptingin á þessu ráðuneyti, þar sem þurfti í rauninni bara að fjölga um einn ráðuneytisstjóra, myndi kosta 70 milljónir, en 200 millj. kr. að auki að færa jafnréttismálin úr félagsmálaráðuneytinu yfir í forsætisráðuneytið. Þannig að verðmiðinn á þessum breytingum, sem áttu sér stað í lok desember 2018, var áætlaður — nú höfum við enga staðfestingu fyrir því hver raunverulegur kostnaður var á endanum — 270 milljónir bara við þennan tilflutning. Ég man þetta glöggt því að ég tók mjög mikinn þátt í þessari umræðu.

Nú er sem sagt verið að gera þetta og þá kemur á daginn að annar þeirra ráðherra sem er að fara inn í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið var einmitt líka ráðherra í því ráðuneyti sem var skipt upp síðast. Nú er verið að taka upp þetta ráðuneyti sem innihélt tvo ráðherra allt síðasta kjörtímabil og það er líka verið að skipta því upp. Þannig að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið verður núna matvælaráðuneyti annars vegar, það sem áður hét sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og hins vegar eitthvert ýmislegt, við munum vonandi fá sérstakan miða á púltið til að reyna að muna hvað þau heita. Auðvitað skipta heitin ekki öllu máli en það er betra ef við getum haft þetta rétt.

Af hverju er ég að rifja þetta allt saman upp? Jú, vegna þess að ég hjó eftir því að hæstv. forsætisráðherra, sem hefur verið að kynna þessa þingsályktunartillögu, sagði að fjölgunin sem slík myndi líklega kosta 450 milljónir. Það er verið að fjölga ráðuneytum úr 10 í 12. Þá á eftir að skoða allar þær breytingar sem eiga sér stað í gegnum alla þingsályktunartillöguna, í gegnum allt Stjórnarráðið, og þetta eru engar smáræðisbreytingar. Meira að segja þar sem stendur að ráðuneyti verði að mestu leyti óbreytt er verið að taka stóra málaflokka út, eins og t.d. ríkisaðstoð, verið er að taka ríkisaðstoðina úr fjármála- og efnahagsráðuneyti og færa yfir í menningar- og viðskiptaráðuneyti. Ég get ekki betur séð en að breytingar á ráðuneytum, svona fljótt á litið, ef við teljum ekki upp alla þá málaflokka sem fara inn í menningar og viðskiptaráðuneyti, séu a.m.k. 14 talsins.

Þá skulum við fara aftur til ársins 2008. Árið 2008 fluttist málaflokkur jafnréttismála úr félagsmálaráðuneyti yfir í forsætisráðuneyti. Flutningur á þessum málaflokki kostaði 200 milljónir — 200 milljónir, var áætlað. Við vitum ekki hvað hann kostaði raunverulega en þetta voru tölurnar sem okkur var boðið upp á hér í þingsal. Í ræðu hæstv. forsætisráðherra hér fyrr í kvöld var talað um að fjölgun ráðuneyta kostaði 450 milljónir. Við erum hérna með 14 málaflokka, a.m.k., sem eru að færast á milli. Við höfum ekki hugmynd um hvað það kemur til með að kosta. Það að færa 200 af 700 starfsmönnum Stjórnarráðsins til í starfi, finna nýjar skrifstofur, finna alls konar fleti á því vandamáli sem mun skapast ef að líkum lætur — þeir sem gerst þekkja til segja að það muni taka svona u.þ.b. 12–18 mánuði að jafna sig eftir þessar miklu kerfisbreytingar, vegna þess að undirbúningur er auðvitað ónógur. Ætla má að beinn kostnaður við þetta, fyrir utan óhagræðið og fyrir utan það tjón sem má ætla að verði á almannaþjónustu við þetta, slagi hátt í milljarð.

Frú forseti. Það eitt og sér að koma með svona breytingar sem eru einhvern veginn búnar til á skrifborði eftir kosningabaráttu á sama tíma og verið er að reyna að búa til stjórnarsáttmála án þess að hæstv. fjármálaráðherra, án þess að hæstv. forsætisráðherra eða nokkur annar ráðherra geti með nokkru móti sagt hvaða mögulegi kostnaður muni hljótast af þessu eða hvað þetta muni taka mögulega langan tíma, er í hæsta máta óábyrgt, verð ég að segja. Það er ekki eins og við séum í miðju góðæri, frú forseti. Við erum hér að tala um að verið sé að gera þetta með svona lítilli yfirsýn og lítilli yfirvegun á sama tíma og við horfum á fjárlög komandi árs með eins miklum halla og raun ber vitni.

Ég sé að tíminn er hlaupinn verulega frá mér, en það eru málaflokkar þarna inni sem ég hef miklar áhyggjur af og mun fjalla um betur í seinni ræðu og mun óska eftir því að fá að komast hér aftur á mælendaskrá sem fyrst. En af því að það kemur fram í þingsályktunartillögunni að hugsunin með allri þessari breytingu sé fyrst og fremst að auka samstarf og samráð á milli þeirra sem fara með málaflokka, þá langar mig að vekja athygli á því að nú er búið að taka málefni barna út úr félagsmálaráðuneytinu, sem gerir það að verkum að málefni barna með fötlun verða ekki lengur hjá barnamálaráðherra. Málefni barna með fötlun verða hjá félagsmálaráðherra en málefni annarra barna verða þá hjá barnamálaráðherra, eða hvað? Við erum að tala um stóra málaflokka sem skiptir svo miklu máli að einhver heildstæð umsýsla sé um. Og af því að við vorum að vinna allt síðasta kjörtímabil í alls konar samþættingu, og hef ég nokkrar áhyggjur af t.d. þessu, af því að ég sé það í þingsályktunartillögunni að það er mjög yfirgripsmikið sem barnamálaráðherra ætlar að gera í sínu ráðuneyti, en það fjallar í rauninni býsna mikið um það sem við vorum að gera á síðasta kjörtímabili. Þá var einmitt kvartað yfir því að hæstv. þáverandi félags- og barnamálaráðherra væri e.t.v. að gleyma nokkuð mikið málefnum öryrkja. Það var talað um það og hann var gagnrýndur fyrir að gleyma þeim málaflokki fullmikið.

Nú er tíminn búinn. Þetta er 1. liður af 14 sem ég ætla að fá að fjalla um varðandi málaflokkana sem flytjast á milli ráðuneyta.