152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:23]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Verða þau samhentari með þessari breytingu? Það er kannski akkúrat þetta sem ég var að tala um þegar ég var að rifja upp söguna. Hvernig stendur á því að það þurfti að kljúfa velferðarráðuneytið í tvennt þegar þar voru tveir ráðherrar að fjalla um þessa stóru og mikilvægu málaflokka? Hver var þörfin á að kljúfa og búa til gjá á milli? Hvers vegna var ekki talin þörf á því í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu á síðasta kjörtímabili? Af hverju gátu þeir ráðherrar sem voru þar unnið saman undir einu þaki? Getur verið að með því að búa til fleiri og fleiri ráðuneyti sé einmitt verið að minnka möguleika sérfræðinga á að vinna þvert á stig? Ég heyri alveg raddirnar uppi í menntamálaráðuneyti. Það heyrist mjög glöggt út fyrir húsið. Það er ekki bara þannig að verkefnin séu bara á borði ráðherra heldur er allt stoðkerfið logandi. Það veit ekkert hvernig þetta kemur til með að vera.