152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur ræðuna. Í ræðunni kom hv. þingmaður inn á fjölda starfsmanna Stjórnarráðsins sem flyttist á milli starfsstöðva, skulum við kalla það, við þessa uppstokkun. Mér þótti mjög áhugavert að heyra að það væru um 200 af 700 starfsmönnum Stjórnarráðsins. Ég finn þetta ekki í greinargerðinni með málinu en þetta er, leyfi ég mér að fullyrða, miklu meiri tilfærsla á starfsfólki Stjórnarráðsins heldur en má segja að hafi verið látið í veðri vaka í allri kynningu og framsetningu á þessu máli. Mig langar til að biðja hv. þingmann að fara aðeins dýpra í þetta ef mögulegt er, hvar þessar upplýsingar liggja eða hafa komið fram því að þetta hlýtur að skipta máli þegar menn reyna að ná utan um tilfærslu þessara a.m.k. 14 málaflokka sem fara á milli ráðuneyta í þessari aðgerð.