152. löggjafarþing — 11. fundur, 15. des. 2021.
breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
167. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þessi tala kemur innan úr Stjórnarráðinu, ekki opinberlega heldur frá fólki sem er reynslumikið og hefur starfað þar árum og áratugum saman. Það hefur verið slegið á þessa tölu þar. Ég tel víst að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem mun fjalla um málið hljóti að taka þetta til skoðunar og spyrja út í þennan hóp fólks sem mun flytjast til við þessa uppstokkun.