152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Annað atriði sem hv. þingmaður kom inn á var svona efnislega að ástandið virtist vera venju fremur slæmt þegar kemur að málefnum menntamálaráðuneytisins hvað það varðar að starfsmenn skrifstofa viti ekki, eins og sagt er í hálfkæringi, hvar þeir eigi að mæta til vinnu daginn eftir. En svona að öllu gríni slepptu þá virðist vera mesta uppstokkunin í þeim hópi starfsmanna Stjórnarráðsins. Mig langar að kalla fram skoðun hv. þingmanns á því hvar mögulega sé of langt gengið í þessari uppskiptingu verkefna gamla menntamálaráðuneytisins.