152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:33]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Jú, það er hætta á því að það verði allt býsna stíflað. Og af því að við erum svo heppin að vera með fólk sem starfar í þessum ráðuneytum sem þorir að tjá sig — ekki allir auðvitað, en það eru margir sem þora að tjá sig — þá getur maður ekki annað en hlustað. Ég var á gangi hérna yfir Austurvöll í vikunni og fékk í fangið starfsmann innan úr stjórnkerfinu sem lýsti mjög bágu ástandi á sínum vinnustað og fullyrti að það væri alveg ljóst með erindi sem myndu berast ráðuneytinu á næstu 12 mánuðum, að það væri óvíst hvort þeim yrði sinnt út af þessum ofboðslegu flutningum. Það er bara óvart þannig að stoðþjónustan öll veit ekkert hvert hún er að fara, hún hefur ekki hugmynd um það. Svona er þetta meira og minna í öllum ráðuneytum nema mögulega forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti.