152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:34]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur sem gaf mér eftir andsvarið af því að ég fann mig knúna til að fara hér upp, því að hv. þingmaður hélt því fram í ræðu sinni að flutningur jafnréttismála yfir í forsætisráðuneytið hefði kostað 200 milljónir. Ég segi nú bara: Gott væri ef jafnréttismálin hefðu fengið 200 milljóna meðgjöf, en þannig var það nú ekki. Það voru fluttir starfsmenn úr félagsmálaráðuneytinu og ráðið í eitt nýtt stöðugildi skrifstofustjóra. Það tengist því sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson nefndi hér, sem er einmitt jákvæð afleiðing þessa verkefnaflutnings, það var að starfsfólk sem sinnti jafnréttismálum í félagsmálaráðuneytinu á þeim tíma var flutt yfir í forsætisráðuneytið og búin til í fyrsta skipti í sögu Stjórnarráðsins sérstök skrifstofa jafnréttismála. Kostnaðurinn við það var metinn 25 milljónir á þeim tíma, þannig að mér þætti vænt um að vita hvaðan hv. þingmaður hefur þessa tölu og hvernig þessar 200 milljónir hafa nýst jafnréttismálum.

Síðan held ég að það væri áhugavert fyrir hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að eiga samtal við þau sem starfa í jafnréttismálum og kanna hvaða áhrif þessi breyting, sem væntanlega ýmsir hafa haft áhyggjur af að myndi valda verulegri röskun á jafnréttismálum, hefur haft á málaflokkinn. Mér fyndist áhugavert að vita að hvaða niðurstöðu nefndin kæmist í því.