breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég veit ekki hvert þessar 200 milljónir hafa horfið, því að við þennan tilflutning var fluttur tiltekinn fjöldi stöðugilda úr félagsmálaráðuneyti og ráðinn nýr skrifstofustjóri. Vissulega var flutt stofnun, Jafnréttisstofa, en það voru ekki nýir fjármunir sem fóru í það, og Jafnréttissjóður var fluttur en það voru ekki nýir fjármunir sem fóru í það. Þannig að mér finnst mikilvægt að fá skýringu á þessu frá hv. þingmanni, því að gott væri ef þessar 200 milljónir hefðu getað nýst til jafnréttismála. En ég er ansi hrædd um að þetta hafi fyrst og fremst verið þetta eina stöðugildi skrifstofustjóra. Ég hvet nefndina, ég ítreka það, til að ræða það, af því að hv. þingmaður hefur miklar áhyggjur af hinni miklu röskun sem kunni að fylgja flutningum, hvaða röskun varð af þessum flutningum á sínum tíma, hvernig málaflokkurinn hefur þróast og hvaða áhrif þetta hefur haft á stöðu jafnréttismála innan stjórnkerfisins. Ég spái því að svörin við því verði að þetta hafi lyft þeim málaflokki. Hér hafi verið umfangsmikil endurskoðun á málaflokknum í formi löggjafar en líka framkvæmdar með verulega miklum framförum fyrir málaflokkinn sem heild. Þannig að breytingar, þó að margir kunni að óttast þær, eru ekki endilega slæmar. Þær leiða einmitt oft til framfara.