152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[22:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir seinna andsvar og tek heils hugar undir að það væri nefnilega gott ef fjármunir færu í þá málaflokka sem um ræðir en ekki bara í stjórnkerfið sjálft og það er einmitt það sem við erum að fjalla um hér. Við erum hér með mjög mikilvæga málaflokka sem gætu notað öll þau hundruð milljóna sem er verið að fara að ráðstafa í þessa flutninga af því að flutningar á málaflokkum og samansafn þeirra án góðrar yfirlegu, án góðrar yfirsýnar, verða oft mun kostnaðarsamari. Það að taka einn málaflokk jafnréttismála og færa hann til er auðvitað ekki það sama og að taka 14–20 málaflokka og færa þá til um ráðuneyti. Þessir peningar gætu mjög vel nýst í málaflokkana sjálfa en ekki yfirstjórn, umsýslu og breytingar.