breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Sá sem hér stendur var aðstoðarmaður hæstv. umhverfisráðherra árin 2011–2013 og fékk þess vegna að njóta þeirrar ánægju að vera viðstaddur þegar auðlindamálin fluttust inn í umhverfisráðuneytið og mynduðu umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Ég hef alltaf haft mikið dálæti á hugmyndum um breytingar og úrbætur á skipan Stjórnarráðs Íslands af því að þar er mjög mikið hægt að gera til að láta þessi ráðuneyti okkar vinna betur í þágu almennings. Því miður snýst þetta mál ekki um það. Þetta mál snýst ekki um að brjóta niður sílóin, eins og gjarnan er talað um, heldur bara að fjölga þeim, búa til eitt síló í viðbót til að koma fyrir einum ráðherra í viðbót. Ef við ætlum í alvöru að brjóta niður sílóin þurfum við að setja fram miklu skýrara og metnaðarfyllra plan.
Rifjum aðeins upp hvernig ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur bar sig að við þær stjórnkerfisbreytingar sem þá voru gerðar. Í stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstjórnar var rúmri síðu varið í stjórnkerfisbreytingar, tilflutning á ráðuneytum og málefnalegan rökstuðning fyrir flutningi verkefna og sameiningu ráðuneyta. Breytingunum var gefið allt kjörtímabilið. Einhver tilfærsla varð á því í hvaða röð breytingarnar áttu sér stað frá því sem upphaflega var lagt upp með, en það var þó alla vega plan sem fólk gat skilið, séð, meðtekið. Stofnuð var ráðherranefnd um stjórnkerfisbreytingar sem fjallaði um þetta og lögum um Stjórnarráð Íslands var breytt til að geta náð þessum verkefnaflutningi fram og til að geta aukið slagkraft ráðuneytanna frá því sem áður var. Ekkert af þessu er hér. Hér er bara verið að færa til verkefni, stundum að því er virðist bara til að þau henti betur áhugasviði ráðherra. Sumt virkar skynsamlegt, sumt virkar bara skrýtið.
Varðandi sílóin og þann skjalfesta vilja ríkisstjórnarinnar sem birtist í stjórnarsáttmálanum og tillöguna um að brjóta sílóin, þá fagna ég því auðvitað. Þar kveður við nýjan tón frá því sem við fengum t.d. að lesa í svari hæstv. forsætisráðherra við fyrirspurn Þorsteins Víglundssonar, þáverandi hv. þingmanns en áður hæstv. ráðherra. Í fyrirspurninni var leitað svara við því hvernig gengi að framkvæma jafnlaunavottun á Stjórnarráðinu sem heild. Þegar þingið samþykkti jafnlaunavottun sem lög vildi það að hið opinbera gengi fram með góðu fordæmi og væri þess vegna í fyrstu innleiðingarlotu jafnlaunavottunar. Þingið vildi að Stjórnarráðið gengi enn framar og væri ekki að jafnlaunavotta allar þessar ólíku kennitölur sem ráðuneytin eru rekin undir, hverja í sínu lagi, heldur sem einingu, vegna þess að þar býr kynbundni launamunurinn í Stjórnarráðinu, á milli ráðuneyta. Við létum ekki duga að beina þessu bara mildilega til ríkisstjórnar í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar heldur festum við það í lög. Í lögunum stóð að Stjórnarráð Íslands ætti að jafnlaunavotta sem eina einingu. Svo kom svarið frá forsætisráðherra við fyrirspurn hv. þm. Þorsteins Víglundssonar og það var, ég leyfi mér að umorða: Nei, því miður. Við erum í sílóum, við getum þetta ekki, lögin segja það.
En batnandi fólki er best að lifa og ég minni á spurninguna sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir slengdi fram í andsvari áðan: Væri ekki sniðugt að nýta þetta tækifæri og koma Stjórnarráði Íslands undir eina kennitölu?
Hér er búið að fara ágætlega yfir kostnaðarþáttinn og þann hróplega skort á greiningum sem er á þessum breytingum. Ég ætla ekkert að eyða orðum í það. En mig langar að nefna örstutt málaflokk sem er mér nokkuð kær, sem eru umhverfismálin. Að mínu mati var ein mikilvægasta breytingin sem átti sér stað 2009–2013 sú að umhverfisráðuneytið var styrkt með því að það tók til sín auðlindamálin. Hugmyndafræðin þar var alveg skýr en því miður var bara ekki gengið nógu langt. Hugmyndafræðin snerist um að draga skýra línu í stjórnkerfinu á milli rannsókna á náttúruauðlindum annars vegar, sem ætti heima í umhverfis- og auðlindaráðuneyti, og ákvörðunar um heimild til auðlindanýtingar og um stjórnun og nýtingu í atvinnuskyni hins vegar. Þetta eru tvær hliðar á sama peningi sem mega helst ekki snertast ef við ætlum að halda jafnvægi. Hæstv. þáverandi umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, skrifaði haustið 2010, með leyfi forseta:
„Að mínu mati er það grundvallarþáttur í velferð þjóðarinnar að rannsóknir á auðlindum og ráðgjöf um nýtingu þeirra séu í skjóli frá nýtingarsjónarmiðum. Slík skipan mála mun marka merkileg tímamót í sögu Stjórnarráðs Íslands.“
Frú forseti. Sú skipan mála sem lagt er upp með hér markar að sama skapi merkilegt afturhvarf í sögu Stjórnarráðs Íslands þar sem öll sjónarmið sem snerta orkunýtingu eru komin á einn og sama staðinn. Þarna hefði miklu frekar átt að klára verkið sem ekki náðist að klára 2013 og taka grunnrannsóknir á öðrum auðlindum og færa inn í auðlindaráðuneytið frá atvinnuvegaráðuneytinu til að atvinnuvegaráðuneytið gæti bara úthlutað kvóta á fiski en ekki metið stofnstærð, úthlutað t.d. nýtingarréttinum en ekki verið að meta það hversu mikið hver auðlind þolir af nýtingu.
Hæstv. forseti. Þetta er slæmt, svo ég noti mildasta orðið sem mér dettur í hug.
Svo þessi skringilegi snúningur sem tekinn var á málefnum skógræktar og landgræðslu. Það eru nú ekki nema sjö eða átta ár síðan þau fluttust úr þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti yfir í umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Þeir málaflokkar eru náttúruvernd, loftslagsmál, umhverfisverndarmál, sem eru jú vissulega gjarnan í höndum þess fólks sem starfar við landbúnað, auðvitað, en eru ekki og eiga ekki að vera iðnaðurinn sem landbúnaðarframleiðsla er. Það á að tækla landbúnað og skógrækt alveg eins og aðra náttúruvernd. Við ræddum hér fyrr í dag hversu undarlegt það væri að fjarskipti hefðu verið klofin frá öllum öðrum innviðum í Stjórnarráðinu í þessari tillögu. Mér þykir jafn undarlegt að sjá landgræðslu og skógrækt klofnar frá öllum öðrum umhverfismálum í þessari breytingu. Og nú er ég ekki einu sinni hálfnaður með það sem ég vildi sagt hafa.
Rétt til að slá botninn í þetta: Hæstv. ráðherra talaði um að orkuskipti og nýting orku væru lykilatriði í loftslagsmálum til framtíðar. Samt er búið að taka (Forseti hringir.) húsnæðismálin og skipulagsmálin frá umhverfisráðuneytinu. Hér fer ekki saman hljóð og mynd, frú forseti, eins og okkur er svo tamt að segja.