breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Gaman að hlusta á ræðu hv. þingmanns. Hann talaði um að sums staðar væri augljóst að það væri mögulega góður hugur á bak við, og örugglega alltaf góður hugur, og það væri skynsamlegt að setja saman einhverja hluti, en í öðrum tilvikum væri meira eins og um væri að ræða áhugasvið hvers ráðherra. Þá kímdi ég aðeins af því að ég er með eitt ráðuneyti sem mér finnst gaman að lesa um í þessari þingsályktunartillögu. Þar segir að meginmálaflokkar menningar- og viðskiptaráðuneytis séu — og nú óska ég að hv. þingmaður leggi við hlustir, þetta eru meginmálaflokkarnir — viðskiptamál, þar með talin samkeppnismál, ríkisaðstoð, íslenskt táknmál, verslun, fjölmiðlar, neytendamál, ferðamál, íslensk tunga, safnamál, listir, menning og ferðamál. Þannig að maður veltir því aðeins fyrir sér með þetta ráðuneyti, þar sem taldir eru upp meginmálaflokkarnir sem eru 12, hvort þarna sé um að ræða að safna saman þeim málaflokkum sem helst tengjast eða mögulega áhugasvið þess ráðherra sem á að fara með þetta ráðuneyti.