breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Já, ég vildi mikið gefa fyrir að hafa verið fluga á vegg á gulmiðafundinum þar sem þessi bland í poka-ráðuneyti voru búin til. Stundum þarf aðeins að hemja hugarflugið hjá fólki á svona fundum. Það hefur alveg gleymst.
Ég ætla að mæta þingmanninum með smá upptalningu sjálfur, aðeins eldri, en ég er hérna með lista af nokkrum skýrslum sem unnar voru varðandi breytinguna á umhverfisráðuneyti til að verða umhverfis- og auðlindaráðuneyti:
Breytt skipan umhverfisstofnana: Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun, Stjórnhættir, janúar 2012.
Breytt skipan umhverfisstofnana: Þjóðgarðar og friðlýst svæði, Stjórnhættir, janúar 2012.
Endurmótun stoðkerfis atvinnulífsins; Greinargerð til iðnaðarráðuneytisins, Stjórnhættir, desember 2010.
Greining á verkefnum ráðuneyta og viðhorfum hagsmunaaðila, forsætisráðuneytið, apríl 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti: Greinargerð vegna mats á möguleikum til frekari samþættingar við framkvæmd verkefna stofnana ráðuneytisins, ParX, janúar 2010.
Skýrsla um mörkun langtímastefnu íslenskrar nytjaskógræktar í samræmi við lög um landshlutaverkefni í skógrækt, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, október 2010.
— Þarna var einnig mælt með því að færa skógræktina yfir til umhverfisráðuneytisins.
Tilflutningur verkefna frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti (SLR) til umhverfisráðuneytis (UMH), Vel ehf., nóvember 2009.
Umhverfisráðuneytið: Tillögur um stofnanauppbyggingu, Capacent, september 2009.
Það þarf nefnilega að greina hluti áður en þú gerir þá ef þú ert að búa til nýtt Stjórnarráð. Það dugar ekki að vera á einhverju flippi uppi í Kríunesi á gulmiðafundi þar sem allir mega taka þá miða sem þau vilja og búa til einhverja bland í poka-ráðherra. Það er ekki þannig sem við búum til stjórnsýsluna okkar. Við eigum fyrirmyndina, þurfum ekki einu sinni að fara til Danmerkur eða Noregs eða hvað það er sem ráðherrarnir eru alltaf að benda. á. Þau eiga þessar skýrslur í skjalasöfnum ráðuneytanna. Gleymdu þau bara að spyrja embættismennina sem eru búnir að fara í gegnum þetta margoft áður?