152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[23:00]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Hann minntist í ræðu sinni á sílóin og síðan minntist hann á að Stjórnarráð Íslands ætti að fá eina kennitölu. Mér fannst gaman að heyra í andsvörum hans að hann talaði um bland í poka, en ég á mitt ákveðið uppáhaldsbland í poka, sem er náttúrlega menningar- og viðskiptaráðuneytið, sem er með ferðamálin. Ég ætla ekki að telja þetta allt upp, en það er íslenskt táknmál, íslensk tunga, ríkisaðstoð, neytendamál og ferðamál, sem er stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar og er í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Hverjum datt í hug að setja þau þar?

Mig langar að spyrja varðandi sílóin. Uppáhaldssetningin mín í greinargerðinni er um þessa ósýnilegu múra stofnanamenningar. Þetta fjallar um verkaskiptingu Stjórnarráðsins, það verða alltaf ákveðin síló til. Við getum kallað það síló, við getum kallað það múra og annað slíkt. En ég tel sjálfur að þessi síló — og það er einfalt að gera það, ég veit að það er gert sums staðar með frjálsu sætavali á vinnustöðum til að blanda, til að fólk hittist og tali óformlega, skiptist á skoðunum. Lítur hann svo að þessi verkaskipting sem á sér stað í forsetaúrskurðinum og þessari tillögu til þingsályktunar um fjölda ráðuneyta séu sílóin en að þetta bland í poka sé bara grautur? Ég lít meira á þetta sem graut í hverju ráðuneyti en síló raunverulega. Ég veit ekki hvernig það skiptist á skrifstofurnar. Það væri gaman að heyra álit hæstv. hv. þingmanns og skoðun hans á þessum sílóum.