152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[23:01]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég er mjög hræddur við að tapa mér í einhverjum myndlíkingum hérna þannig að ég ætla ekki að tala um síló eða graut. (ÞSv: Hvað með súrheysturn?) Ég ætla bara að tala um það að Stjórnarráðið er 700 manna vinnustaður sem er skipt upp í 11 — núna 12 kennitölur. Það þýðir að 12 sjálfstæðir vinnustaðir þurfa að vera með mestalla grunnþjónustu fyrir starfsemina á sínum eigin vegum þó að Stjórnarráðið hafi sem betur fer náð að samreka ákveðna hluti. Það þýðir líka, og þetta er ég viss um að hv. þingmaður kannast vel við frá sínum tíma í ráðuneytinu, að færanleiki starfsmanna á milli kennitalna er miklu minni en hann gæti verið.

Það hefur lengi verið ákvæði í lögum um að starfsmaður í ráðuneyti megi flytjast innan Stjórnarráðsins í annað ráðuneyti, en þetta hefur sárasjaldan verið notað. Hluti af ástæðunni gæti verið launamunur á milli ráðuneyta, vegna þess að launamunurinn í Stjórnarráðinu er ekki bara kynbundinn heldur líka bundinn við það hvernig verkefni hvers ráðuneytis eru metin. Og það er vissulega kynjavinkill í því, því að kvenlægu verkefnin eru metin verðminni en þau karllægari í Stjórnarráðinu.

En hugsum okkur bara ef þetta væru ekki 12 kennitölur með 700 starfsmönnum dreift í litlar einingar, heldur einn 700 manna dínamískur vinnustaður þar sem fólk getur unnið sem lögfræðingar við málaflokk í fimm ár. Svo fær það bara nóg af úrgangsmálum í ráðuneyti umhverfismála og getur þá bara húrrað sér yfir í eitthvað allt annað. Þá getur það bara farið að vinna við menningu. Svo getur það fimm árum seinna farið eitthvert annað. Þetta er kerfi sem við þekkjum víða. Það þarf ekkert endilega að steypa (Forseti hringir.) þessu öllu saman í eina kennitölu, nema vegna þess að reynslan sýnir okkur að kerfið eins og það er býður ekki upp á það. Það er slæmt bæði fyrir Stjórnarráðið og fólkið sem vinnur þar.