breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrra andsvar. Varðandi Stjórnarráð Íslands og eina kennitölu þá er Stjórnarráð Íslands ekki fjölskipað stjórnvald. Það sem við köllum ríkisstjórn er raunverulega bara ráðherrafundur, það er hópur ráðherra. Það segir í 17. gr. stjórnarskrárinnar að ráðherrafundi skuli halda um nýmæli í lögum og mikilvæg stjórnarmálefni. Það reyndi nú á þetta fyrir landsdómi, mikilvæg stjórnarmálefni. Ég tel að hérna sé raunverulega verið að fara út fyrir það að ráðherrar séu með sitt vald og svo er farið að breyta stjórnarmálefnunum, flytja þau til án þess að vinnustaðurinn sé færður til, af því að vinnustaður starfsmanna Stjórnarráðsins er á skrifstofunum. Það væri réttast að flytja skrifstofuna milli ráðherra. Þá er það ekki flutningur í starfi. Það er hins vegar hægt að flytja af einni skrifstofu yfir á aðra skrifstofu, þá er um að ræða flutning í starfi. Þannig að ég tel að röng aðferðafræði sé notuð við þessa breyttu skipan ráðuneyta.
Varðandi bland í poka og það sem við erum að tala um, að hafa þetta á einni kennitölu, þá tel ég það vera ómögulegt, því að það þarf breytingu á stjórnarskránni til þess að fá þetta fjölskipaða stjórnvald. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á því hvort þetta bland í poka, eins og hann kallaði það áðan, samræmist raunverulega skoðun hans á því hvernig skipa eigi málum innan Stjórnarráðsins og hvort þetta bland í poka fari ekki bara eftir áhugamálum ráðherranna, stemningunni, hver stemningin er í ráðherrahópnum, hverjir vilja fá hvað, frekar en faglegri skoðun á því hvernig eigi að hafa skipan ráðuneytanna. Þetta eru miklu meira persónulegar skoðanir þeirra sem fara með völdin á hverjum tíma en er ekki byggt á faglegum grundvelli. Og það er örugglega ekki verið að skoða þetta frá sjónarhorni starfsmannanna.