152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[23:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Kannski eru spurningarnar mínar að verða marklausar eftir að hafa hlustað á hv. þingmann og tillögu hans um að við ættum kannski bara að leggja niður fjárlaganefnd. Það er kannski þannig sem maður upplifir þetta akkúrat núna. Ég sit nú, ásamt hv. þingmanni, sveittur alla daga við að reyna að ná utan um einhver 1.100 milljarða fjárlög sem eiga að renna í gegn milli jóla og nýárs. Það er erfitt að ná utan um þetta allt saman. Það er erfitt að hlusta á umsagnir sem fólk reynir að veita um frumvarp sem við erum ekkert klár á hvort verði svona eða hinsegin eða alla vegana eða ekki. Þetta er einhvern veginn út og suður. Þessi vinnubrögð, að við séum hér að reyna að vanda okkur og sýna ábyrgð í fjármálum og ná utan um einhvern pakka sem á síðan að leggja fram sem einhverja heild — að bjóða fjárlaganefnd og bjóða þingheimi upp á það, af því að það á að skrifa nefndarálit á föstudag eða laugardag, við munum hugsanlega fá kostnaðinn við þetta í hendurnar á föstudag og nefndarálitið á að fæðast á laugardag. Ég spyr hv. þingmann, af því að hann er reyndur í fjárlagagerðinni og hefur setið þarna áður: Er þetta Alþingi sæmandi að vinna svona?