breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Ég ætti kannski að draga upp Vogona-ljóðið mitt af þessu tilefni því að það er einmitt sá súrrealismi sem lýsir því hvernig Vogonar, martröð stjórnsýslunnar, eru svona alltumlykjandi í þessu máli og því hvernig fjárlaganefnd og þingið hefur þurft að glíma við duttlunga ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili og greinilega núna á þessu. Þetta er greinilega svo vel unnið að þau vita ekki einu sinni hvað þetta kostar og ætla að koma með einhverja upphæð, eftir atvikum í 3. umr. sem verður milli jóla og nýárs. Enginn tími gefst til þess einu sinni að fá neins konar umsagnir um það hvort mat á kostnaði sé nálægt því að vera rétt eða ekki.
Mér er í fersku minni fjáraukafrumvarpið frá því í dag þar sem við erum að glíma við 60% hærra — nei, meira náttúrlega, þetta eru 60% af heildarupphæðinni, rúmlega 100% hækkun á Hefjum störf-verkefninu. Hvernig fór með Landspítalann? Hversu marga milljarða fór það yfir? 16 milljarðar eða eitthvað svoleiðis eru komnir í aukakostnað. Og við vitum að það er ekki búið. Það rosalega skrýtið að vera í slíkum aðstæðum: Já, við erum komin 16 milljarða yfir, það er það sem við vitum, og svo er eitthvað sem við vitum ekki, hver verður aukakostnaður í viðbót við það. Það er ekkert í þessu sem er rétt gert, ekki neitt.