breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Ég býst fastlega við því að það þurfi annan forsetaúrskurð í kjölfarið á þessu, fyrir ný ráðherraheiti og ýmislegt svoleiðis. Það segir náttúrlega sitt um undirbúninginn fyrir þetta. Þessir tveir mánuðir sem fóru í ríkisstjórnarmyndun fóru greinilega ekki í mikið, alla vega ekki undirbúning fyrir það hvernig þetta ætti að líta út þannig að það væri hægt að breyta þessu strax þá. Ég veit ekki hvort það er nauðsynlegt að gera þetta nema kannski af því að forsetaúrskurðurinn er kominn nú þegar. Þetta er allt mjög skrýtið. Fyrir mig spilar þetta rosalega mikið inn á þetta fjölskipaða stjórnvald sem við erum að vinna samkvæmt, þ.e. ekki fjölskipað stjórnvald. En við gætum samt hagað okkur þannig. Ríkisstjórnin gæti hagað sér þannig, verið með þannig samvinnu að hún starfi eins og um fjölskipað stjórnvald sé að ræða til að reyna að eyða þessum veggjum sílóanna milli ráðuneytanna. (Forseti hringir.) Þá skiptir ekki máli í rauninni hvernig ráðuneytin eru skipulögð ef ríkisstjórnin sinnir þeim skyldum sínum (Forseti hringir.) að hafa einhverja samvinnu í gangi, einhverja samhæfingu. En það er bara ekki málið.