152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

fjárhagsstaða sveitarfélaga.

[14:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Nýlega sagði Friðrik Jónsson, formaður BHM, að skattstofn sveitarfélaga væri ein stærsta skekkjan á íslenskum vinnumarkaði og það hreinlega hamlaði kjarasamningagerð. Hann sagði það hag stéttarfélaganna, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga einfaldlega að laga þessa skekkju. Við vitum það sem hér störfum að sveitarfélögum er sniðinn þröngur stakkur og þeim eru sett verkefni til að leysa en er ekki skammtað það fjármagn sem þarf til að vinna þau verkefni. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga nær ekki að laga þá skekkju sem hefur myndast eins og við þekkjum. Þótt sveitarfélögin væru öll af vilja gerð til að semja um kjarabætur þá hafa þau einfaldlega ekki svigrúmið til þess. Og vel að merkja, langstærsti hluti starfsfólks sveitarfélaga eru konur. Þetta svigrúm er hins vegar ákvarðað hér í þessum sal og ég vil ræða það við hæstv. ráðherra. Stéttirnar sem við erum að tala um eru, eins og ég gat um áðan, svokallaðar kvennastéttir og mig langar til að vita: Hvað hefur ríkisstjórnin gert nákvæmlega til að bæta hag þeirra?

Enn bólar ekkert á vinnu fjármála- og efnahagsráðherra sem átti að fara af stað 2018 til að efna til viðræðna við aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa sveitarfélaganna um leiðir til að tryggja jafnræði við launasetningu ólíkra starfsstétta sem vinna hjá hinu opinbera. Það bólar ekkert á þeirri vinnu.

Mig langar því til að spyrja hæstv. nýjan vinnumarkaðsráðherra: Hvað ætlar hann að gera til að bæta stöðu sveitarfélaga þegar kemur að kjarasamningum? Þetta er risastórt mál. Hvernig hyggst hann bæta kjör kvennastétta? Hvernig ætlar hann að fylgja eftir þeirri þingsályktunartillögu sem þingið samþykkti og beindi til ríkisstjórnarinnar um að bæta kjör kvennastétta? Hvernig hann ætlar hann að fylgja því eftir? Og hvernig ætlar hann að bregðast við orðum formanns BHM, Friðriks Jónssonar, um einmitt þessa skekkju á vinnumarkaði vegna þessarar erfiðu stöðu sveitarfélaga?