152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

fjárhagsstaða sveitarfélaga.

[14:11]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil bregðast örlítið við orðum hv. þingmanns um að ekkert hafi gerst varðandi kvennastéttir. Ég held að það hafi skipt miklu máli á síðasta kjörtímabili að vinnuvikan var stytt. Vaktafyrirkomulag varðandi styttingu vinnuvikunnar er auðvitað stórt viðfangsefni enn þá, en þetta kemur sér vel fyrir kvennastéttir líkt og aðra.

Að öryrkjunum. Við verðum að muna að það er greidd desemberuppbót og orlofsuppbót til öryrkja. Það sem við erum að ræða hérna er hins vegar þessi eingreiðsla. Við heyrum mjög mikið ákall í ár eftir svipuðu sem var tengt við Covid í fyrra og ég skil þær raddir og við erum að hlusta eftir því. Eins og ég og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sögðum hér í gær: Kerfið þarf að bæta og það er ekki búið. Það er enn þá heimsfaraldur í gangi og við viljum öll að í samfélagi okkar geti allir átt gleðileg jól. Þess vegna skoðum við þetta að sjálfsögðu í meðförum þingsins líkt og ég og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra höfum sagt.