desemberuppbót til lífeyrisþega.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í andsvari við mig í umræðu um fjáraukalög að það væri í verkahring hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra að gera tillögu um jólabónus upp á 50.000 kr. eingreiðslu, skatta- og skerðingarlaust, sem hæstv. fjármálaráðherra síðan tæki til skoðunar. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra félagsmála: Er á dagskrá hjá honum að leggja fram tillögu um þetta svo öryrkjar og einstæðingar og eldra fólk sem hokra nú og reyna að eiga fyrir mat eigi smámöguleika á að halda heilög jól?
Í andsvari við mig sagði hæstv. félagsmálaráðherra að í fyrra hefði vissulega verið eingreiðsla sem kom til vegna Covid-19 faraldursins, en þau hefðu ekki horft til þess að það kæmi til eingreiðslu að þessu sinni. Covid-19 faraldrinum er langt frá því lokið og er á hraðri uppleið. Veikt fólk, sérstaklega það sem er með undirliggjandi sjúkdóma, er einangrað heima hjá sér og á enga möguleika á að fara í röð eftir mat, hvað þá að fá sendan mat heim, því að eins og þessir einstaklingar hafa bent mér á duga lífeyrislaunin hjá flestum bara í viku eða tíu daga. Vanlíðan, hræðsla og allt að því skelfing einkennir þá sem verst hafa það og hvað þá þau sem eru með börn á framfærslu sinni við þessar ömurlegu aðstæður. Ákallið um hjálp höfum við sannarlega fengið í tölvupóstum til okkar. Einnig hef ég fengið símtöl frá fólki sem er við það að gefast upp á að lifa við þessar ömurlegu aðstæður. Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í þessum málum því þau þola enga bið lengur?