152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

desemberuppbót til lífeyrisþega.

[14:21]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég lít svo á að hér sé um tvíþætta spurningu að ræða, annars vegar það sem snýr að stærri myndinni og heildaraðgerðum þegar kemur að málefnum örorku- og ellilífeyrisþega sem við höfum rætt hér áður og sjá má í stjórnarsáttmála. Hugmyndin er að breyta kerfinu, einfalda það, gera það skiljanlegra og gera það sanngjarnara með þeim hætti að þau sem ekki geta séð sér farborða hafi hærri ráðstöfunartekjur. Og á sama tíma að auðvelda þeim sem geta unnið fyrir sér að hluta til að komast út á vinnumarkaðinn án þess að skerða þurfi heildartekjur of mikið. Þetta er risavaxið verkefni. Ég er farinn að funda með aðilum, hagsmunaaðilum og hagaðilum um þessi mál og vonast til að setja vinnu í gang sem fyrst upp úr áramótum þegar kemur að þessum þætti málsins.

Þarna eru ýmsar áskoranir sem ég ætla ekki að fara í hérna vegna þess að ég vil geta brugðist við hinum hluta spurningarinnar sem snýr að eingreiðslum, ég kom inn á það í svari til hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Í fyrsta lagi minni ég aftur á að í upphafi mánaðarins voru greiddar desemberuppbót og orlofsuppbót. En þetta snýst um mögulegar eingreiðslur sem tengjast Covid-faraldrinum. Ég held að það sé alveg sanngjarnt að horfa líka til þess að þar sem ekki er búið að bæta kerfið megi horfa til þess að svona eingreiðsla geti komið til og við viljum öll að hér geti öll í okkar samfélagi átt gleðileg jól, gefið gjafir, borðað góða jólamáltíð og þar fram eftir götunum. Því segi ég, líkt og fjármála- og efnahagsráðherra sagði í umræðunni í gær og ég líka, að við munum að sjálfsögðu skoða þetta í meðförum þingsins.