152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

desemberuppbót til lífeyrisþega.

[14:24]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég held að við hv. þingmaður séum algjörlega sammála um að bæta þurfi kjör þeirra verst settu í samfélaginu og ég er sannfærður um að við munum eiga um það gott samtal og samstarf í þinginu. Ég er staðráðinn í því að reyna að gera mitt allra besta til að við getum bætt kjör þeirra sem búa við fátækt á Íslandi. Fátækt er meinsemd sem við eigum ekki að líða í samfélagi okkar og ég veit að við erum öll sammála um að það er verkefnið fram undan að bæta úr því.