152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

upphæð barnabóta.

[14:29]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Skil ég hæstv. ráðherra rétt? Er hann á móti norræna barnabótakerfinu og telur hann það ekki koma að gagni hér fyrir íslenskar barnafjölskyldur? Við í Samfylkingunni höfum talað fyrir því að skerðingar barnabóta hefjist ekki fyrr en við meðallaun. Best væri að hafa þær ótekjutengdar með öllu. Í Danmörku byrja barnabætur að skerðast við 1,3 millj. kr. mánaðarlaun en eru óskertar vegna launa í hinum norrænu ríkjunum. Í stjórnarsáttmálanum er talað um að bæta eigi barnabótakerfið, en hið gagnstæða birtist í fjárlagafrumvarpinu þar sem heildarupphæðin helst óbreytt á milli ára og greiðslur til atvinnulausra vegna barna lækka.

Ég spyr því hæstv. ráðherra vinnumarkaðar hvort hann muni beita sér fyrir því að barnabætur sem kjarabót fyrir fleiri barnafjölskyldur verði á samningaborðinu sem framlag stjórnvalda í þeim kjarasamningum sem fram undan eru.