atvinnuleysistryggingar.
Forseti. Já, þetta eru dálítið flókin lög og það eru bráðabirgðaákvæði þarna og ýmislegt annað sem spilar inn í og lengja þetta úr þremur í sex mánuði og alls konar flækjur sem einkenna öll þessi bótakerfi okkar. Nú er verið, eins og hæstv. ráðherra segir, að gera heildarendurskoðun á þessum lögum, enda er hann vinnumarkaðsráðherra. Við vorum áður með barnamálaráðherra sem tók einmitt við ráðuneyti þegar var verið að byrja á heildarendurskoðun laga um börn og hann var þá barnamálaráðherra af því að einhver annar byrjaði á því. Nú er byrjað á heildarendurskoðun á vinnumarkaðslöggjöfinni og það er vinnumarkaðsráðherra. En það á líka að vera heildarendurskoðun á lögum um almannatryggingar fyrir öryrkja. Ekki erum við að tala við öryrkjamálaráðherra. Er það kannski vísbending um hvaða árangri hæstv. ráðherra býst við að ná með þessum heildarendurskoðunum á lögum hjá sér?