þátttaka stjórnarliða í umræðum.
Virðulegur forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar og verð að lýsa því yfir að ég sakna þess að heyra pólitíska afstöðu þess helmings þingmanna sem er í stjórnarliðinu. Það er svo sérstakt að standa hér dag eftir dag og heyra aldrei neitt um afstöðu þeirra í risastórum málum; fjárlögum, fjárauka, uppskiptingu Stjórnarráðs eða öðru. Ég velti fyrir mér hvort þau hafi lofað því að taka ekki til máls í desembermánuði eða hvort þau séu mögulega bara svona upptekin af því að það eru að koma jól. (Gripið fram í: Fjárlagagerð.) Jafnvel hv. formaður fjárlaganefndar mætir ekki til að ræða fjáraukalög. Þetta er svolítið sérstök staða.