þátttaka stjórnarliða í umræðum.
Herra forseti. Í gærkvöldi og svo aftur í dag er á dagskrá mál sem varðar breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þetta mál hlýtur að vera mjög vel ígrundað, jafnvel frá hruni, ef marka má plaggið sem við ræðum, en samt er það svo afspyrnu innihaldslítið. Við vitum að þetta mun kosta hundruð milljóna. Við vitum að þetta tefur mikið af þeim verkefnum, brýnum verkefnum, sem fram undan eru og við vitum að þetta skapar einhvers konar sátt meðal stjórnarflokkanna, þ.e. í ríkisstjórninni. Meira vitum við ekki. En þeir 37 plús einn stjórnarþingmenn, hvort sem eru ráðherrar eða sitjandi þingmenn, hér í salnum hljóta að vita eitthvað meira en við í stjórnarandstöðunni, ella myndu þeir ekki leggja skilyrðislaust lag sitt við þetta vegna þess að þeirra á meðal eru, að ég held, þingmenn sem virkilega er annt um ríkiskassann. Þannig að ég óska eftir að þeir taki þátt í umræðum hér á eftir til að upplýsa okkur um hvert málið er.