breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég hafði í hyggju, af því að allmargar athugasemdir og spurningar og vangaveltur hafa komið fram í máli þingmanna, að halda ræðu síðar í dag þar sem ég ætlaði að fara yfir málið. Ég get með gleði svarað hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni því að málefni barna, bæði samþætting þjónustu í þágu farsældar barna, Barna- og fjölskyldustofa og þar með málefni barnaverndar og Greiningar- og ráðgjafarstöð munu heyra undir mennta- og barnamálaráðuneyti frá og með 1. febrúar. Eins og fram kom í ræðu minni í gær er hér undir tillaga til þingsályktunar sem mun hafa áhrif á forsetaúrskurð til breytinga. Þar munu einstök málefni færast yfir í lokagerð forsetaúrskurðar. Ég vona að hv. þingmaður geti þá jafnvel tjáð sig aftur ef þetta skýrir myndina. En hins vegar eru þær athugasemdir sem hafa komið fram þess eðlis að mér finnst betra að fara yfir þær í heildstæðri ræðu fremur en að vera í einnar mínútu andsvörum.