152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

desemberuppbót.

[15:18]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og taka undir með honum að það er ánægjuleg niðurstaða að fjárlaganefnd hafi öll staðið að tillögu um eingreiðslu til örorkulífeyrisþega. Ég þakka þeim sem sendu ákall, þakka stjórnarandstöðunni þeirra vinnu og stjórnarmeirihlutanum þeirra vinnu, samráðherrum mínum og fulltrúum meiri hlutans í fjárlaganefnd. Þetta var mjög góð niðurstaða. Við þurfum síðan að klára þetta með hraði, eins og hv. þingmaður veit. Það er ágætt að tilkynna þingheimi það að Tryggingastofnun hefur staðið í undirbúningi að þessu frá því fyrir helgina og við vonumst til að þetta geti klárast eins hratt og hægt er. En ég vil áfram leggja áherslu á það að við lítum til heildarendurskoðunar á kerfinu. Við höfum of mikið á undanförnum árum, alveg óháð þessari eingreiðslu, verið að stagbæta kerfið. Það eru of miklar skerðingar þvert á bótaflokka. Þetta vil ég gera forgangsmáli í samvinnu við samtök örorkulífeyrisþega og fatlaðs fólks.

Hér er spurt um eingreiðslur til eldra fólks og ég vil minna á að það hefur verið greidd desemberuppbót til þessa hóps, henni er eiginlega skipt upp í tvennt; annars vegar að vori til þegar orlofsgreiðslur eru greiddar og hins vegar í desember. Það var komið á félagslegum viðbótarstuðningi við þau sem minnst hafa milli handanna meðal eldra fólks í fyrra eða frá og með árinu í ár. Ég vil því benda á að það hafa ýmis skref verið tekin og svo höfum við boðað endurmat á kerfinu líka meðal eldra fólks. En komi fram tillaga þessa efnis sem hv. þingmaður nefnir þá verður hún væntanlega tekin hér til þinglegrar meðferðar og skoðunar.