desemberuppbót.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum aftur fyrir umræðuna hér og endurtek bara það sem ég sagði áðan. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að í hópi eldra fólks er fólk sem er illa statt, rétt eins og í hópi örorkulífeyrisþega, og fleira fólk en er í þessum tveimur hópum. Fyrir mér er stóra verkefnið að takast á við fátækt meðal þeirra hópa þar sem hún fyrirfinnst, hvort sem það er á meðal eldra fólks, öryrkja, þeirra sem lægstu launin hafa eða eru í atvinnuleit. Það er risastórt verkefni sem ég vonast til að við getum tekið höndum saman um hér á Alþingi á þessu kjörtímabili og við horfum á það í auknum mæli í þeim ákvörðunum sem við tökum.