152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

breytingar á almannatryggingakerfinu.

[15:24]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jónssyni fyrirspurnina. Fyrst er því til að svara, og ég veit ekki hvort hv. þingmaður þekkir þær breytingar sem gerðar voru á almannatryggingakerfinu hvað varðar eldri borgara hér á síðasta kjörtímabili, að þær breytingar voru gerðar eftir mjög ítarlega vinnu hæstv. félagsmálaráðherra, forsætisráðherra og fjármálaráðherra þar sem tekinn var upp sérstakur félagslegur viðbótarstuðningur við tekjulægsta hópinn í hópi eldri borgara. Það er áhugavert að skoða að það er hópur sem á ekki full réttindi í almannatryggingakerfinu eins og því var breytt árið 2016, konur í meiri hluta og fólk af erlendum uppruna.

Þegar hv. þingmaður spyr um forgangsröðun þá er rétt að líta til heildarmyndarinnar, þeirra breytinga sem voru gerðar 2016, þeirra breytinga sem voru gerðar aftur 2019/2020 sem vörðuðu þennan tekjulægsta hóp sem var mikið forgangsmál hjá mér að yrði horft til. Hvað þessa breytingu varðar þá snýst hún kannski fyrst og fremst um að hvetja eldri borgara til þátttöku á vinnumarkaði.

Það er raunar líka boðað í þeim orðum sem finna má í stjórnarsáttmála þegar kemur að breytingum á almannatryggingakerfinu fyrir örorkulífeyrisþega. Það er í takti við það sem mörg í þeirra hópi hafa óskað eftir, þ.e. að við þróum kerfi þar sem við tryggjum annars vegar betur afkomu hinna verst settu í hópi örorkulífeyrisþega en gerum öðrum þeim sem hafa möguleika á því að sinna einhvers konar atvinnu það kleift, en það erum við ekki að gera með kerfinu eins og það er núna. Það er slík kerfisbreyting sem ég kallaði eftir og að hún sé ekki hugsuð sem þvingandi aðgerð heldur sem hvetjandi aðgerð þar sem við höfum þessi tvö markmið að leiðarljósi.

Af því að hv. þingmaður vitnaði í stjórnarsáttmála, og taldi ekkert haldfast koma fram þar, finnst mér við hæfi að nefna þetta hér, því að hann hefur greinilega misst af þessum kafla.