152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

breytingar á almannatryggingakerfinu.

[15:28]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég gerði ráð fyrir að hv. þingmaður, sem er nú jafnaðarmaður, væri að spyrja um tekjulægsta hópinn í hópi eldri borgara, af því að það er auðvitað það sem kom út úr þeirri greiningu sem unnin var af fjármálaráðherra, forsætisráðherra og félagsmálaráðherra á sínum tíma, að þarna væri í raun hópur sem ekki ætti full réttindi og þyrfti verulega (Gripið fram í.) á auknum stuðningi að halda.

Hvað varðar atvinnutekjurnar þá nefndi ég það áðan að þær hafa lotið öðrum lögmálum vegna þess að við viljum hvetja fólk til virkni. Hv. þingmaður spyr þá af hverju ekki gildi það sama um örorkulífeyrisþega. Því er til að svara að ég tel mjög mikilvægt að við gerum heildstæða breytingu á örorkulífeyriskerfinu. Eins og hv. þingmaður þekkir væntanlega er það kerfi í dag mjög flókið, býður upp á skerðingar milli ólíkra bótaflokka sem og skerðingar vegna atvinnutekna. Það er gríðarlega mikilvægt að við náum þeirri heildstæðu breytingu þannig að við getum í raun gert það sem ég þykist vita (Forseti hringir.) að hv. þingmaður sé sammála mér um, þátt öryrkja til virkni án þess að þeir lendi í vandræðum með aðrar greiðslur sem þeir eiga rétt á.