152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

gjörgæsla Landspítalans.

[15:37]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Forseti. Smitum fjölgar og vandi, eða öllu heldur neyð, Landspítalans vex. Ástandið hefur reynt mjög á þolgæði þjóðarinnar sem hefur staðið eins og klettur í nærri tvö ár þrátt fyrir viðvarandi ófyrirsjáanleika og atvinnuleysi. Á sama tíma hefur aðbúnaður gjörgæsludeildar Landspítalans ekkert verið bættur þótt hann hafi þegar verið ófullnægjandi áður en heimsfaraldurinn skall á. Fyrir vikið hefur ítrekað þurft að fresta stórum og lífsnauðsynlegum aðgerðum vegna þess að ekki er hægt að veita fólki í gjörgæslumeðferð eftir aðgerðir. Í september var t.d. talað um að heil 27 stöðugildi hjúkrunarfræðinga vantaði til að fullmanna gjörgæsluna. Ég tel mig geta sagt með vissu að fjölgun gjörgæslurýma og bættur aðbúnaður og kjör starfsfólks sé grundvöllur þess að okkur takist að lifa með veirunni til langs tíma, því að það er ekkert sem bendir til þess að hún sé á förum í bráð.

Ég vil þess vegna spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hyggst ríkisstjórnin halda áfram að vinna með harðar takmarkanir nokkrar vikur í senn og síðan hægfara afléttingar til að vernda Landspítalann eða mun ríkisstjórnin loksins bæta aðbúnað og mönnun gjörgæslunnar svo hún verði ekki lengur sjálfstæður áhættuþáttur í þessu stóra verkefni okkar allra?