152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

gjörgæsla Landspítalans.

[15:39]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Staðreyndin er sú að framlög til heilbrigðismála almennt voru aukin verulega á síðasta kjörtímabili, enda var þetta eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar. Þar gildir einu hvort horft er til spítalans, heilsugæslunnar eða geðheilbrigðismála, alls staðar hefur verið gefið í og raunar tel ég árangurinn sem heilsugæslan hefur náð í gegnum þennan faraldur m.a. byggja á því að staða hennar var styrkt töluvert í aðdraganda hans. Það breytir því ekki að staðan var mjög þung eftir töluvert aðhaldssaman rekstur á spítalanum árum saman, það verður að segjast eins og er. Eins standa íslensk heilbrigðisyfirvöld frammi fyrir ekki ósambærilegum vanda og heilbrigðisyfirvöld annars staðar á Norðurlöndum í það minnsta, sem er mönnun heilbrigðiskerfisins, sem hv. þingmaður nefnir hér.

Ráðist hefur verið í sértækar aðgerðir sem hefur ítrekað verið farið yfir hér í þingsal til að styrkja getu Landspítalans, því að hv. þingmaður nefnir hann. Þá vil ég sérstaklega vitna til m.a. opnunar hágæslurýma sem flestar þjóðir hafa upp á að bjóða samhliða gjörgæslurýmum, en einnig endurhæfingarrými, sérstaka farsóttardeild í Fossvogi sem og opnun rýma til að tryggja betur fráflæðið frá spítalanum. Þó að það sé leiðinlegt að nýta það orð þá er það auðvitað eitt af því sem hefur lengi þurfti að bæta.

Í raun og veru hefur því verið staðið að uppbyggingu heilbrigðismála allt síðasta kjörtímabil og heldur áfram. En það liggur líka fyrir að þörfin er mikil. Mönnunin er vandamál hér eins og annars staðar (Forseti hringir.) og í ljósi faraldurs þá vitum við að flestar þjóðir hafa lent í mjög erfiðum aðstæðum á heilbrigðisstofnunum sínum.