gjörgæsla Landspítalans.
Frú forseti. Ég ítreka svör mín af því að hv. þingmaður nefnir hér gjörgæsluna, að hágæslurýmin sem munu bætast við eru mjög mikilvæg aðgerð til að létta álagi á gjörgæslunni. Það er nokkuð sem aðrar þjóðir hafa gert, eins og ég nefndi í fyrra svari, þ.e. að hafa hágæslurými til stuðnings gjörgæslu. Þannig að það liggur algerlega fyrir að ráðist verður í ákveðnar aðgerðir til að létta álagi þar.
Hvað varðar samstöðu þjóðarinnar og samstöðu innan ríkisstjórnarinnar þá vil ég segja að ég styð heilbrigðisráðherra fullkomlega í þeim aðgerðum sem hann ákvað að ráðast í í kjölfar tillagna sóttvarnalæknis. Ég vil benda á það, af því að hv. þingmaður nefnir traust þjóðarinnar, að ítrekað hafa kannanir sýnt bæði traust þjóðarinnar á heilbrigðiskerfinu og sóttvarnaráðstöfunum stjórnvalda. Það er hins vegar alveg ljóst að ekki eru allir sammála þessum aðgerðum (Forseti hringir.) og hafa viðrað spurningar og athugasemdir. Þá held ég að einfaldara sé að hv. þingmaður spyrji þá hv. þingmenn (Forseti hringir.) fremur en forsætisráðherrann sem hefur staðið með stefnu stjórnvalda í gegnum þetta allt saman.