152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

vegurinn um Vatnsnes.

[15:46]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og tek undir með honum að þessi vegur er sannarlega ekki í ásættanlegu ásigkomulagi, sem gildir reyndar um marga malarvegi. Mér fannst lýsingin kannski fulldramatísk en geri ekki lítið úr upplifun fólks að keyra þann veg, sérstaklega á haustin.

Staðan er sú að þegar ég kom í ráðuneytið fyrir nokkrum árum var þessi vegur ekki á neinni samgönguáætlun. Við höfum verið með um 1 milljarð í tengivegi, og þetta er tengivegur, í öllum landshlutum hringinn í kringum Ísland. Þessi vegur kostar yfir 3 milljarða. Það sem búið er að gera er það sem hv. þingmaður nefndi réttilega, útboð á brú yfir Vesturhópshólaá ásamt 2,2 km vegarkafla sem átti að leggjast á síðasta ári. Ekkert tilboð barst í verkið en það verður boðið út að nýju á þessu ári. Á sama tíma hefur verið í undirbúningi og hönnun rúmlega 5 km kafla frá Kárastöðum að Ánastöðum sem er líka ráðgert að bjóða út á næsta ári. Hér er því verið að tala um framkvæmdir fyrir 500–600 milljónir. Síðan er rétt að restin hefur verið tekin út fyrir sviga og sett sérstaklega á samgönguáætlun, er sem sagt ekki lengur í tengivegapottinum, og eru áætlaðir í það um 2,5 milljarðar. Það er á þriðja tímabili samgönguáætlunar sem er langt í en um er að ræða 69 km langan veg.

Eins og hefur komið fram hjá hv. þingmanni hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á uppbyggingu tengivega um land allt og við höfum sett sérstakt átak í það núna næstu árin en meira þarf til. Það er líka rétt að það kemur fram í stjórnarsáttmála að áhersla ríkisstjórnarinnar er að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og auðvelda skólaakstur á svæðum sem búa við malarvegi. Byggðastofnun hefur verið að (Forseti hringir.) teikna upp slík svæði og ég treysti á að þegar við komum með samgönguáætlun inn í þingið verði hv. þingmaður, (Forseti hringir.) sem og aðrir, tilbúinn að veita meira fé í þennan mikilvæga málaflokk.