152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

vegurinn um Vatnsnes.

[15:50]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni jákvæðar heitstrengingar um að afla meira fjár til tengivega. Ég er sammála hv. þingmanni að það er mikilvægt að ráðast sem fyrst í þetta. En ég vil ítreka að á liðnum árum hefur staða Vatnsnesvegar breyst. Hann er vissulega meira keyrður, umtalsvert meira, af heimamönnum vegna breyttra atvinnuhátta, fjölgunar ungra fjölskyldna á svæðinu en líka af ferðamönnum, sem er vel. Við þurfum hins vegar að setja meira fé í þennan málaflokk. Þegar ég kom að Vatnsnesvegi var hann bara einn af tengivegum landsins og á milli þeirra vega átti að skipta heilum milljarði á öllu Íslandi á næstu árum. Það fara 500–600 millj. kr. í þennan veg á næsta ári og það er búið að setja restina af veginum inn á samgönguáætlun þannig að verkefnið varðandi þennan veg er að flýta því. Verkefnið gagnvart öllum öðrum vegum, og öllum öðrum skólabörnum sem keyra líka langan veg í öðrum landshlutum, er að fá meira fé í tengivegina og horfi ég yfir til ýmissa sem sitja í fjárlaganefnd til að fá stuðning við slíkt.