fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir það sem fram kom í seinna andsvari hv. þingmanns, þ.e. að við þyrftum að greina kostnaðinn betur og ná betur utan um einstaka liði hans. Það má gera betur í því og við eigum að að sundurgreina betur þann kostnað. Það er síðan meginboðorðið sem við höfum haft í gegnum þennan faraldur að tryggja aðgengi að sýnatöku og greiningu og nota það til að byggja undir lýðheilsu okkar. Ég held að almenn þátttaka í sýnatöku og greiningu sé grundvallaratriði og einn af lykilþáttunum sem við höfum haft til að ráða við faraldurinn, til að bregðast við honum. Það má hins vegar ræða það skipulag ef faraldurinn dregst mikið lengur og kostnaðurinn hleðst upp. Ég vil þó aðeins segja að ég held að sýnataka og greiningar séu grundvallaratriði til að fylgjast með framgangi faraldurs og greina fólk sem er veikt. Það er önnur umræða hve langt við eigum að ganga í að styðja við sýnatökur, t.d. vegna ýmissa viðburða, hversu lengi við eigum að beita þeim. Það er umræða sem er vel þess virði að taka. Eins og aðrir, virðulegur forseti, vil ég trúa því að faraldurinn dragist ekki mjög á langinn. En þetta er eitt af grundvallartækjunum sem við höfum haft í baráttunni við faraldurinn, sýnatakan og greiningarnar, aðgengi að því, og síðan sameiginleg þátttaka í því að greiða kostnaðinn af þeim þáttum.