fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Við sitjum saman í fjárlaganefnd og ég vil sömuleiðis nota þetta tækifæri til að þakka honum fyrir þá vinnu og það samstarf sem við höfum átt í aðdraganda þessara frumvarpa, bæði fjáraukalagafrumvarps og frumvarps til fjárlaga. Fyrir okkur sem komum inn í þetta ný er þetta mikið að melta og margt sem maður þarf að koma sér inn í. Það er því afar mikilvægt fyrir okkur og skiptir okkur miklu máli að hafa reynslumikið fólk í þessari nefnd, sem svo sannarlega er.
En það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um, varðandi nefndarálit hans um fjárauka fyrir 2021, er tvíþætt. Nú heyri ég á hans tali hér og sé það í nefndarálitinu að hann gagnrýnir þetta verkefni, Hefjum störf, og ef ég skil hann rétt þá gagnrýnir hann formið frekar en efnið. Ég heyrði það líka á andsvari hans áðan að hann var ekki andsnúinn verkefninu sem slíku. En hann talar um rannsóknir og nýsköpun. Ég vil taka fram að ég er mjög hlynntur rannsóknum og nýsköpun og nýsköpunarverkefnum. En það sem mig langaði einfaldlega að spyrja um varðandi þetta verkefni, og hann þekkir þetta, enda búinn að vera hér lengur en ég: Er það ekki rétt skilið hjá mér að verkefnið hafi verið sett af stað til þess að vernda heimili og afkomu fólks? Verkefni er tengjast nýsköpun og rannsóknum taka miklu lengri tíma áður en þau fara að skila árangri. Verkefni tengd nýsköpun hefðu kannski ekki gagnast með sama hætti og á sama tíma og hefðu ekki skilað sama árangri og það neyðarúrræði sem þetta verkefni var.