152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar aðeins að víkja að loftslagsmálunum hér í seinna andsvari, vegna þess að fjáraukalög eiga að taka til útgjalda sem ekki voru fyrirséð þegar fjárlög voru afgreidd. Fyrir ári voru íslensk stjórnvöld með metnað í loftslagsmálum tveimur skrefum aftar en þau eru í dag. Fjármálaáætlun setti markið á um 10 milljarða framlag til loftslagsmála á næsta ári. Þar af átti helmingur að fara í að niðurgreiða bíla og þar af átti stór hluti að fara í að niðurgreiða bíla sem að einhverju eða öllu leyti væru knúnir jarðefnaeldsneyti, eins undarlega og það kann að hljóma. Þegar metnaður ríkisstjórnarinnar óx úr 40% upp í 50% samdrátt í losun var 1 milljarði bætt ofan á þessa 10 milljarða, það var 10% hækkun á því fjármagni sem átti að bæta við. Fyrir það fyrsta ætti þessi upphæð að vera töluvert hærri. Þetta er hvergi nærri þeim 4% af vergri landsframleiðslu sem Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir að séu lögð í baráttuna gegn loftslagsvánni. En hefði ekki líka átt að sjá þess stað í fjáraukalögum ársins þar sem á að heita að metnaðurinn hafi verið aukinn? Er sú staðreynd að ekki er sérstök viðbót í fjáraukalögum, dálítið stór viðbót meira að segja, til að sýna hinn meinta stóraukna metnað, enn eitt dæmi þess að metnaður ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er kannski meira í orði en á borði?